Hér á Pollýanna heima
Tenglar
16.12.2008 10:01:54 / pukinn

Bumbubúinn - 20 vikna sónar

Fór í 20 vikna sónar á mánudaginn í síðustu viku og fékk svona ansi fínar myndir af erfingjanum

» 1 hafa sagt sína skoðun

09.12.2008 12:47:56 / pukinn

Jólin koma

Það styttist óðum í jólin og því komin tími til að skella síðunni í jólafíling.

Ég er alveg að verða búin að kaupa jólagjafir
Ég er byrjuð að skreyta ... nánast búin
Ég er búin að kaupa jólatré
Ég ætla að baka smákökur um næstu helgi
Ég verð í jólafríi frá og með 17.des:lol:

Hvað með ykkur - hvernig gengur jólaundirbúningur hjá ykkur?

» 0 hafa sagt sína skoðun

06.10.2008 12:32:30 / pukinn

3 dagar í ammæli !!!

Þeir sem ekki eru búnir að merkja við 9.október í dagatalinuhjá sér eru vinsamlegast beðnir um að græja það hið snarasta ..... þann örlagaríkadag verð ég nebblega þrítug:!:!:!:

Ekki hefur enn verið ákveðið að halda uppá þetta með pompiog pragt .... spurning um að halda bara uppá þrjátíu og eins árs ammæli ??  Ég ætla nú reyndar að skjótast austur fyrirfjall með eiginmanninum, mömmu, pabba og litlu sys og gæða mér á humri íafmæliskvöldverð.  Svo er stefnan tekin á Minneapolis þann 15.okt í “afmælisferð Önnu & Inga”.  Kannski að ég bjóði ykkur hinum í kaffi ogmeðlæti helgina 25/26. okt í tilefni þrítugsafmælis míns ... hef barasta ekki tímafyrr.

Sjáum til hvernig þetta þróast allt saman ......:$


» 2 hafa sagt sína skoðun

15.09.2008 16:40:52 / pukinn

Best að byrja að blogga aftur

Þar sem litla systir er byrjuð að blogga aftur ætli maður neyðist þá ekki til þess líka.... svo er sumarið líka nánast búið .... þá kemur haustið með rigninguna og svo veturinn með snjóinn og hvað á maður þá að gera annað í vinnunni en að skella inn smá bloggfærslum endrum og eins.  8)

Þarf eflaust að koma með smá upprifjun á því hvað hefur gerst síðan ég hætti að blogga ... en þarf að gefa mér aðeins lengri tíma í að upphugsa það allt saman - það er svo OFBOÐSLEGA langt síðan ég hætti að blogga :$



» 3 hafa sagt sína skoðun

22.02.2008 14:44:31 / pukinn

Allt breytt

Það er búið að breyta öllu hérna inná blogcentral !!!  Núna heitir ekki síðan mín lengur blog.central.is/litli_puki heldur litli-puki-737352.blogcentral.is !!!!  Er nú ekki allt of ánægð með það - skilst nú samt að ég geti breytt þessu eitthvað - kíki á það seinna.
Síðan er búið að breyta öllu inní vefstjórninni líka ..... veit ekki alveg hvað mér finnst um það ... gef þessu kannski smá séns :)
Annars er lítið að frétta .... sit í vinnunni og mér hundleiðist .....þarf kannski að fara að koma mér í eitthvað smá frí .....

Jæja ... nenni þessu ekki meir í bili
Bless í bili

» 0 hafa sagt sína skoðun

02.01.2008 16:47:20 / pukinn

2008

Gleðilegt Nýtt Ár !!!


» 2 hafa sagt sína skoðun

19.12.2007 15:12:31 / pukinn

Malt og Appelsín ......

Mér finnst ótrúlega sniðugt að það sé hægt að fara út í búð og kaupa tilbúið Malt og Appelsín ... þetta er svo hentugt.  Ég lenti hins vegar í miður skemmtilegri lífsreynslu í gærkvöldi sem tengist einmitt Malt og Appelsín.  Við Jói fórum heim til mömmu og pabba í gær eftir að Jói sótti mig í vinnuna .... mér tókst svo að sjálfsögðu að troða okkur í kvöldmat hjá þeim ;).... Mig langaði svo mikið í Malt & Appelsín með matnum og mamma fer og nær í það ... átti nú reyndar bara eina kalda dós og svo nokkrar volgar.  Við Jói skiptum þá bara að sjálfsögðu þessari köldu með okkur.  Þegar ég er svo búin með allan matinn minn (já og reyndar allt sem til var) og búin úr glasinu mínu tek ég eftir því að það eru svona litlar flögur um allt glasið mittt.  Verður okkur þá litið undir dósina sem var ÚTRUNNIN. :!:8|:!: Svona er nú móðir mín aldeilis góð við uppáhaldsdóttur sína og tilvonandi tengdason ........ ætti ég að reyna að lesa eitthvað út úr þessu ??  :S


» 2 hafa sagt sína skoðun

14.12.2007 16:31:06 / pukinn

Íslensku jólasveinarnir

Fengið að láni á www.jolahusid.is

Hér er röðin á íslensku jólasveinunum og aðfaranótt hvaða dags hver og einn kemur:

12.des. - Stekkjarstaur: Fannst best að sjúga ærnar en var með staurfætur svo það gekk heldur erfiðlega.

13.des. - Giljagaur: Hafði yndi af mjólkurfroðunni og hélt sig mest í fjósinu.

14.des. - Stúfur: Var lítill og snaggaralegur og fannst dásamlegt að kroppa leifarnar af pönnunum. Sérstaklega ef þær voru vel viðbrenndar.

15.des. - Þvörusleikir: Mjór eins og girðingarstaur og þótti ekkert betra en að sleikja þvörur sem notaðar voru til að hræra í pottum.

16.des. - Pottaskefill: Hirti óhreinu pottana úr eldhúsinu og skóf þá að innan með puttunum. Þeir þurftu engan þvott eftir þá meðferð.

17.des. - Askasleikir: Stal öskum fólksins, faldi sig með þá og skilaði ekki aftur fyrr en þeir voru tómir.

18.des. - Hurðaskellir: Fannst ekkert skemmtilegra en að skella hurðum og notaði til þess hvert tækifæri sem gafst.

19.des. - Skyrgámur: Ægilegur rumur sem þefaði uppi skyrtunnurnar og át þar til hann stóð á blístri.

20.des. - Bjúgnakrækir: Fimur við að klifra uppi í rjáfri og stal þar reyktum hrossabjúgum.

21.des. - Gluggagægir: Gægðist inn um hvern glugga til að reyna að koma auga á eitthvað sem hann gæti hnuplað.

22.des. - Gáttaþefur: Með sitt heljarstóra nef gat hann fundið lykt af nýsteiktu brauði langar leiðir og runnið þannig á sinn uppáhaldsmat, laufabrauð.

23.des. - Ketkrókur: Stakk löngum stjaka með króki á niður um strompana til að krækja í kjötlærin sem héngu í eldhúsloftinu.

24.des. - Kertasníkir: Þótti góð tólgarkerti og átti í miklu sálarstríði af því hann gat ekki bæði horft á fallegan logann af þeim og borðað þau.


» 0 hafa sagt sína skoðun

13.12.2007 15:20:59 / pukinn

Gott að vita fyrir ykkur öll....

Hvernig gera á konu hamingjusama?
Það er ekki erfitt.


Til að gera konu hamingjusama, þarftu bara að vera:
1. vinur
2. félagi
3. ástmaður
4. bróðir
5. faðir
6. húsbóndi
7. yfirmaður
8. rafvirki
9. trésmiður
10. pípari
11. handlaginn
12. skreytimeistari
13. stílisti
14. sérfræðingur í kynlífi
15. mannþekkjari
16. sálfræðingur
17. hagfræðingur
18. reiknimeistari
19. góður huggari
20. góður hlustandi
21. skipuleggjari
22. góður faðir
23. snyrtilegur
24. samúðarfullur
25. sportlegur
26. hlýr
27. skemmtilegur
28. aðlaðandi
29. snillingur
30. fyndinn
31. hugmyndaríkur
32. mjúkur
33. sterkur
34. skilningsgóður
35. þokkafullur
36. prúður
37. metnaðarfullur
38. hæfileikaríkur
39. þolgóður
40. skynsamur
41. trúr
42. ábyggilegur
43. ástríðufullur
..og gleymir aldrei að:
44. gefa henni gjafir reglulega
45. fara með henni að versla
46. vera heiðarlegur
47. vera örlátur
48. að stressa hana ekki
49. horfa ekki á aðrar konur


og um leið þá verðurðu líka að:
50. veita henni mikla athygli, og hugsa ekki mikið um sjálfan þig
51. gefa henni allan tíma sem hún þarf
52. gefa henni mikið frelsi, ekki hafa áhyggjur af því hvert hún fer

Það er mjög áríðandi:
að gleyma aldrei:
1. afmælisdögum
2. brúðkaupsdögum
3. plönum sem hún hefur ákveðið
__________________________________



Til að gera karlmann hamingjusaman:
1. Gefa honum að borða
2. Sjá til að hann fái það reglulega
3. og þegja svo….


» 5 hafa sagt sína skoðun

11.12.2007 16:48:25 / pukinn

Jólagjafakaup

Er að spá í að skella mér í það að kaupa "síðustu" jólagjafirnar núna á eftir ... hljómar það ekki mjög skynsamlega .... spurning bara hvert maður ætti að fara ... á maður að hætta sér inní Kringlu .... Smáralindina nenni ég ekki í - er búin að finna það út að mér finnst hún bara alls ekki skemmtileg.  Kannski ætti ég að kíkja í Holtagarða ... það er náttlega komið fullt af búðum þar .... best ég byrji bara á Kringlunni í dag og fari svo í Holtagarða á morgun eða hinn - hljómar þetta ekki rosalega skynsamlega hjá mér?


» 2 hafa sagt sína skoðun

10.12.2007 09:35:19 / pukinn

Joke of the day - Nelson Mandela

Nelson Mandela is sitting at home watching TV and drinking a beer when he hears a knock at the door. When he opens it, he is confronted by a little Chinese man, clutching a clip board and yelling, "You Sign! You sign!"

Behind him is an enormous truck full of car exhausts. Nelson is standing there in complete amazement, when the Chinese man starts to yell louder, "You Sign! You sign!" Nelson says to him, "Look, you've obviously got the wrong man", and shuts the door in his face.

The next day he hears a knock at the door again. When he opens it, the little Chinese man is back with a huge truck of brake pads. He thrusts his clipboard under Nelson's nose, yelling, "You sign! You sign!"

Mr Mandela is getting a bit hacked off by now, so he pushes the little Chinese man back, shouting: "Look, go away! You've got the wrong man. I don't want them!" Then he slams the door in his face again.

The following day, Nelson is resting, and late in the afternoon, he hears a knock on the door again. On opening the door, there is the same little Chinese man thrusting a clipboard under his nose, shouting, "You sign! You sign!" Behind him are TWO very large trucks full of car parts. This time Nelson loses his temper completely, he picks up the little Man by his shirt front and yells at him: "Look, I don't want these! Do you understand? You must have the wrong name! Who do you want to give these to?"

The little Chinese man looks very puzzled, consults his clipboard, and says:

 

 

(It's a beauty)    

 

 

(Wait for it)                        

 

 

(Get your best Chinese accent ready)                    

 

 

 

"You not Nissan Main Deala?"


» 0 hafa sagt sína skoðun

08.12.2007 19:26:47 / pukinn

..... lífsmark frá mér ....

Þá eru útlendingarnir farnir .... skutlaði þeim út á flugvöll í kringum hádegi í dag.  Við fórum uppá Mýrdalsjökul í gærdag í þvílíkt frábæru og fallegu veðri.  Útsýnið ofan af jöklinum var gjörsamlega ólýsanlegt.  Alltaf gaman að komast aðeins út úr höfuðborginni ... sérstaklega í svona fallegu veðri. 

Í dag var mér svo formlega boðið í jólabakstur heima hjá mömmu.  Evu systur hafði dottið í hug að baka sörur og vildi endilega að ég kæmi og hjálpaði til við baksturinn.  Ég var þó aðallega í því að fylgjast með hvað kökurnar væru búnar að vera lengi inni í ofni og svo stjórnaði ég því vandasama og mikilvæga verki að sjá til þess að jólalögin væru að spilast ....  en til að gera langa sögu stutta þá bökuðum við (ég, mamma og Eva) 3 tegundir af smákökum .... ótrúlega vel af sér vikið. 

Ekki á svo að gera mikið af sér í kvöld ... bara taka því rólega eftir langa viku.  Stefnan er svo tekin á Smáralind með Rósu á morgun til að reyna að klára jólagjafir og þess háttar. 

Hvernig hefur helgin verið hjá þér? 

Bless í bili


» 3 hafa sagt sína skoðun

06.12.2007 10:06:18 / pukinn

Lítið við næstu daga .....

Verð lítið nálægt tölvu næstu daga .... er að fara til Keflavíkur að ná í útlendinga núna á eftir og skila þeim ekki af mér fyrr en á laugardaginn.  Þið verðið vonandi ekkert rosalega sár ef ég blogga ekki daglega á meðan ;)

Planið hjá mér næstu daga er sumsé að fara út að borða ... jeppast, skoða fossa, strendur og jökla.

 

Vildi bara láta ykkur vita af hverju lítið mun gerast hér á síðunni næstu daga ... ef ég næ að grípa í tölvu inná milli þá kannski skelli ég inn nokkrum orðum.

 Bless í bili :)

» 0 hafa sagt sína skoðun

04.12.2007 08:55:30 / pukinn

My Horoscope for DECEMBER 04, 2007

An unexpected conversation with a current or potential romantic partner could end with both of you revealing a lot of your deepest feelings, Anna. This discussion may only indirectly concern the status of your relationship, but you will learn a lot about each other that might cause you to consider seriously whether or not you want to continue with the relationship. All signs imply, however, that the relationship might change slightly, but it will continue.


» 6 hafa sagt sína skoðun

03.12.2007 18:33:25 / pukinn

Mánudagur - Desember .......

Það er víst kominn mánudagur AFTUR ... hvernig gerðist þetta eiginlega ... vikan bara hvarf.  Kominn mánudagur og það þýðir víst að bloggsíðan sé búin í helgarfríi þannig að það er þá best að tjá sig eitthvað hérna.

 Hvað gerðist nú markvert um helgina .... látum okkur nú sjá ... jú Jói kom heim á föstudag .... TÖSKULAUS :!::!:... það má ekki hleypa honum í gegnum Parísarflugvöll þá týnir hann bara töskunum .... hvað með allar jólagjafirnar sem voru keyptar í útlöndum?? Hef sterkan grun um að jólagjöfin MÍN sé í annarri hvorri töskunni .... eða kannski er það bara afsökunin hans Jóa þannig að ef töskurnar skila sér ekki fyrir jól þá mun standa í jólakortinu til mín “jólagjöfin þín er á ferðalagi í Evrópu – skilar sér vonandi heim fyrir næstu jól” ..... hvað haldið þið – eitthvað til í þessu hjá mér? 

Á föstudagskvöldið fórum við sumsé og hittum elítuna úr leiðsöguskólanum (hefði nú mátt vera betri mæting) en allt besta fólkið var á staðnum og var bara mjög gaman.  :D Siggi og Eyja alltaf alveg þvílíkt gestrisin – ekkert nema gott um það að segja. 

Á laugardeginum var svo farið uppí sveit .... já og þá meina ég uppí sveit.  Það sem maður leggur ekki á sig til að fá eitthvað að borða .... fórum sumsé í jólahlaðborð með vinum hans Jóa á bóndabæ rétt hjá Reykholti í Borgarfirði .... kvöldið var alveg frábært, maturinn algert lostæti og félagsskapurinn mjög góður .... við vorum svo ekki komin heim fyrr en klukkan 4 um nóttina .... enda langt ferðalag. Í gær henti ég svo upp smávegis jólaskrauti enda fyrsti í aðventu og svo kíktum við systurnar í Kringluna að leita að jólagjöfum handa foreldrunum .... erfiðast var nú að koma Evu í skilning um að við værum EKKI að leita að fötum eða skóm handa henni.  8|Þetta tókst nú allt á endanum og ótrúlegt en satt þá er ég bara næstum því búin að kaupa allar jólagjafir (fór aftur í Kringluna í dag og keypti smávegis meir).  Hvernig er með ykkur – allir búnir að kaupa jólagjafir, pakka inn og jafnvel skrifa jólakort ?

 En núna er ég orðin alveg glorhungruð – best að athuga hvort þessi maður ætli ekki að koma inn úr bílskúrnum og gefa mér eitthvað í svanginn ...... 

Bless í bili  ;) 


» 5 hafa sagt sína skoðun

Síður: 1 2 3 ... 11
Dagsetning
22. mars 2010
Síðast inni
Ég var síðast inni þann 16 desember